Loftmynd af Drangsnesi á hátíðarkvöldi — grasvellir, sjávar klettar og þorpið við sjóinn
Mynd: Ragna Ólöf Guðmundsdóttir
17.–18. júlí 2026 · Drangsnes

Bryggjuhátíð á Drangsnesi

Bryggjuhátíðin er meira en bara dagskrá, hún er endurfundir, samvera og sumarstemning eins og hún gerist best. Tveir dagar af tónlist, gleði og ógleymanlegum stundum við sjávarsíðuna á Drangsnesi.

2
dagar
30+
viðburðir
3
tónlistarviðburðir
Loftmynd af fólksmassa við bál á grasvelli á Bryggjuhátíð á DrangsnesiMynd: Ragna Ólöf Guðmundsdóttir

Tónlist

Tónlistin í ár

Á föstudagskvöldinu verður lifandi tónlist á Malarhorni sem sér um að koma hátíðargestum í góða stemningu og hefja hátíðarhelgina með stæl. Á laugardagskvöldinu verður glæsileg kvöldskemmtun með brekkusöng, skemmtun og góðri samveru. Að henni lokinni tekur við dansleikur í Samkomuhúsinu Baldri þar sem hátíðargestir geta skemmt sér fram á kvöld.

Markaður & matur

Bragð, gleði og stemning á hverju horni

Á laugardeginum fyllist Aðalbraut af lífi og fjöri þegar heimafólk og gestir koma saman til að njóta matar, markaðar og skemmtunar.

Smakk og góðgæti

Sjávarréttarsmakk Kvenfélagsins Snótar fer fram kl. 12:00–14:00 og Hamborgarabúlla Tómasar verður á svæðinu með hamborgara og meðlæti.

Markaður á Aðalbraut

Á markaðnum má finna fjölbreytt handverk, heimagerðar afurðir, matvöru og ýmislegt spennandi. Skemmtileg markaðsstemning fyllir Aðalbrautina þar sem gestir geta gengið á milli sölubása, skoðað vörur.

Fjör fyrir yngstu gestina

Á Fúsatúni verður nóg um að vera fyrir yngstu gestina. Hoppukastali, andlitsmálning, álblöðrur og krakkatattú. Þar geta börnin leikið sér og skemmt sér á meðan fjölskyldan nýtur hátíðarinnar saman.

Langborð með sjávarréttum og mannfjöldi á Bryggjuhátíð á DrangsnesiMynd: Ragna Ólöf Guðmundsdóttir
Maður steikir á risastórri pönnu við matarmarkaðinn á BryggjuhátíðMynd: Ragna Ólöf Guðmundsdóttir

Staðsetning

Komdu á Bryggjuhátíðina

Bryggjuhátíðin fer fram víðs vegar um Drangsnes. Hér finnur þú helstu upplýsingar um staðsetningu, ferðalag og gistimöguleika.

Hvar fer hátíðin fram?

Dagskráin teygir sig um allt þorpið, meðal annars við Kokkálsvíkurhöfn, Aðalbraut, Fúsatún, sundlaugina, fótboltavöllinn, Verslunarfélagið, Grunnskólann, Samkomuhúsið Baldur og Malarhorn.

Leiðin til Drangsness

Drangsnes er staðsett á Ströndum, um 3 klukkustunda akstur frá Reykjavík. Á leiðinni færðu að njóta stórbrotinnar náttúru og fallegs útsýnis.

Tjaldsvæðið á Drangsnesi

Tjaldsvæðið verður opið alla hátíðarhelgina og tekur á móti gestum nær og fjær. Athugið að greitt er fyrir gistingu á tjaldsvæðinu samkvæmt gildandi gjaldskrá. Við mælum með að mæta snemma til að tryggja sér gott pláss.

Vegur með litríkar fánar og Drangey í sólsetriMynd: Ragna Ólöf Guðmundsdóttir

Opnunartímar

Verslunarfélagið (Búðin)

  • Föstudagur09:00–21:00
  • Laugardagur09:30–19:00
  • Sunnudagur11:00–15:00

Malarhorn

  • Föstudagur12:00–01:00
  • Laugardagur12:00–21:00

    Happy hour 14:00–17:00

  • Sunnudagur12:00–21:00

Sundlaugin

  • Föstudagur11:00–19:00
  • Laugardagur09:00–19:00
  • Sunnudagur11:00–18:00

Styrktaraðilar

N1
Bjóssi Völku ehf
Hótel Húsafell
Fiskvinnslan Drangur ehf
Halldór Jónsson
Balkanic Kitchen & Grill
Villimey
Hraunsnef Sveitahotel
GeoSilica Iceland
66 North
Malarhorn
Allraverk ehf
Svanshóll
Hamborgara Búllan
Ölgerðin
Domino's
Hveravík
ST2 ehf
Ísfélag
Kvenfélagið Snót
Strandafrakt
Háafell
Grillkofinn
Hótel Laugarhóll
Emmessis
OCHE
Lifetrack
Miniplay.is
Fjölskyldugarðurinn
Hygge
Skúli ehf Útgerðarfélagið
Björgunarsveitin Björg Drangsnes
Vexana Markaðsstofa
Smári Sparisjóður
Neisti Drangsnesi
Galdur Brugghús
Byggðastofnun
Skíðafélag Strandamanna
Kaldrananeshreppur
Útgerðarfélagið Byr
Fotia
Stella Maris ehf
Taramar
Vestfjarðastofa
Nesvegur 5 ehf
Dokkan Brugghús
Hvammsvík Hot Springs
Stella Maris ehf
Kotió sauna
Orkubú Vestfjarða
HREPPAMJÓLK
Water Drop Logo
Mermaid Boat 2025